Um Eyvöru

Samstarfsvettvangur um uppbyggingu netöryggisgetu á Íslandi

Eyvör NCC-IS er hæfnisetur Íslands í netöryggi sem eflir þekkingu, hæfni og samstarf á sviði netöryggis.
Hæfnissetur Íslands í netöryggi
Starfseminn

Sex svið sem mynda heildstæða nálgun

Netöryggi og samfélag

Saman byggjum við upp öflugra samfélag. Traust samstarf stjórnvalda, atvinnulífs og háskóla auka skilning og getu allra til að geta stigið stærri skref í netöryggismálum.

Norrænt og evrópskt samstarf

Með auknum hraða í tækni er heimurinn sífellt að minnka. Við vinnum mikið með nágrannalöndum á norðurlöndum og eins í Evrópu og er áhugi til ýmisskonar samstarf stöðugt að aukast.

Styrkir og nýsköpun

Mikil gróska er í íslensku samfélagi varðandi hvers kyns nýjungar, hvort sem það er tækni, rannsóknir, lausnir, þjálfun eða upplýsingar.
Netöryggisstyrkir Eyvarar gefa þeim sem hafa góðar hugmyndir smá orkuskot til að halda áfram

Evrópskt regluverk

Það regluverk sem gildir varðandi netöryggi er eitthvað sem við þekkjum vel og við þekkjum vel það sem er framundan einsog NIS2, Cyber Resilence Act (CRA) og margt fleira. Við leiðbeinum og fræðum.

Menntun og rannsóknir

Uppbygging á námsleiðum og samstarf í rannsóknum helst oft í hendur. Greiningar á stöðu ólíkra aðila varðandi netöryggi getur kallað á breytt framboð eða áherslur í menntun.

Framtíðin er ljós

Netöryggismál eru fyrirferðarmikil og er hraðinn í tæknibransanum er mikill og erfitt að sjá fyrir endann á þeirri þróun Það gerir netöryggismálin ekki síður mikilvægari en áður.
Samstarfsaðilar

Byggt á samstarfi

Fjarskiptastofa leiðir og samhæfir verkefnið í heild og ber jafnframt ábyrgð á vinnu sem snýr meðal annars að uppbyggingu netöryggissamfélagsins, evrópsku og norrænu samstarfi og tengingu

netöryggisregluverks, tækni og nýsköpunar. RANNÍS leiðir vinnu við styrki og stuðning við evrópsk sóknarfæri. Háskóli Íslands leiðir greiningu á hæfni- og fræðsluþörf og Háskólinn í Reykjavík uppbyggingu menntunar og rannsóknarumhverfis á sviði netöryggis.