Um okkur

Eyvör NCC-IS er hæfnisetur í netöryggi á Íslandi og hluti af evrópsku netöryggisneti á vegum European Cybersecurity Competence Centre (ECCC), stofnað á grundvelli reglugerðar ESB 2021/887. Setrið er samstarfsverkefni innviðaráðuneytisins, Fjarskiptastofu, Rannís, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.

Markmið Eyvarar NCC-IS er að efla netöryggisgetu á landsvísu með því að styrkja rannsóknir, menntun, fræðslu og nýsköpun, auk þess að auðvelda íslenskum aðilum aðgengi að alþjóðlegum samstarfs- og sóknarfærum. Eyvör styður markvisst við fyrirtæki, háskóla, rannsóknasamfélagið og hið opinbera, meðal annars með styrkveitingum til verkefna sem auka hæfni og getu á sviði netöryggis.

Eyvör NCC-IS vinnur að því að efla samtal stjórnvalda og atvinnulífs, styrkja norrænt og evrópskt samstarf og byggja upp öflugt þekkingarsamfélag í netöryggismálum á Íslandi. Fjarskiptastofa leiðir starfsemi Eyvarar NCC-IS og hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir og stuðla að sterkri og sjálfbærri netöryggismenningu, með það að markmiði að íslensk fyrirtæki, háskólar og vísindafólk verði meðal leiðandi aðila á sviði netöryggis.

Verkefnastjóri Eyvarar er Hrannar Ásgrímsson

Hrannar býr yfir 15 ára reynslu af verkefnastjórnun í innlendum og alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Controlant, 1xINTERNET, Creditinfo og LS Retail.

Hann er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og hefur leitt fjölmörg krefjandi verkefni á sviði upplýsingatækni, fjármála og fjarskipta.

Hrannar Ásgrímsson

Stjórn Eyvarar NCC-IS, skipuð til tveggja ára, er eftirfarandi:

  • Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu (formaður)
  • Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, forseti samfélagssviðs HR
  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
  • Svandís Unnur Sigurðardóttir, teymisstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís

Stýrihópur

Hópur aðila frá öllum samstarfsaðilunum. Stýrihópurinn fundar einu sinni á mánuði til að ræða verkefni sem eru í vinnslu innan í Eyvör NCC-IS. Haldnar eru fundargerðir eftir hvern fund og samþykktar af fundarmönnum. Staða á verkefnum og styrktarbeiðnir eru teknar fyrir á fundum stýrihópsins.

Fagráð

Fagráð Eyvarar er ráðgefandi teymi varðandi t.d. styrkveitingar.
Fagráðið Eyvarar er skipað af eftirfarandi aðilum:

  • Ásgeir Geirsson, Öryggisstjóri Seðlabanka Íslands, formaður fagráðs
  • Gunnar A. Ólafsson, Sérfræðingur og ráðgjafi
  • Alma Tryggvadóttir, Cyber Lead hjá Deloitte
  • Eiður Örn Gunnarsson, sérfræðingur hjá CCDCOE í Tallin
  • Gyða Bjarkardóttir, Sérfræðingur
  • Guðrún Margrét Ívansdóttir, netöryggissérfræðingur hjá CERT-IS

Samstarfsaðilar Eyvarar NCC-IS eru: